29.5.2006 | 14:31
Kunnuglegur söngur eftir Evróvisjón
Þegar það var svo ljóst að Silvía kæmist ekki áfram fann maður fyrir svipaðri líðan og þegar maður skyndilega uppgötvar að maður hefur setið of lengi í samkvæmi sem var manni kannski ekkert sérstaklega að skapi til að byrja með - en þá er líka yfirleitt farið að renna af manni.
Fyrstu dagana eftir keppnina heyrði maður og las (í fjölmiðlum og á bloggsíðum) margar skýringar á því hvers vegna framlag Íslands hefði ekki hlotið náð fyrir augum Evrópubúa. Oftast heyrði maður þá fullyrðingu að Ísland ætti engan sjens í keppninni lengur því að henni væri í raun stjórnað af þjóðum Austur-Evrópu. "Það er ljóst að Austur-Evrópa er í tísku núna. Mörg lög þaðan komast í gegn án þess að eiga það skilið," sagði Selma Björnsdóttir í viðtali við Morgunblaðið þann 19. maí og í öðru viðtali við Jón Jósep Snæbjörnsson sagði Jónsi eitthvað á þá leið að réttast væri að kalla keppnina "Balkanvisjón" eða "Júgóvisjón".
Eflaust hafa margir tekið undir þessar fullyrðingar fullir af heilagri Evróvisjón-reiði og svona fullyrðingar hljóma mjög vel þegar mann svíður hvað mest undan tapsárindunum.
En stenst þetta nánari skoðun?
Mér reiknast það til að 37 Evrópuþjóðir hafi tekið þátt í keppninni í ár; 16 Austur-Evrópuþjóðir, 19 Vestur-Evrópuþjóðir (þar með talin smáríkin Andorra og Mónakó) og svo Ísrael og Tyrkland, sem ég kann satt að segja ekki að flokka í þessu sambandi.
23 þjóðir kepptu í undankeppninni; 12 Austur-Evrópuþjóðir og af þeim komust sex áfram, og 11 Vestur-Evrópuþjóðir (Tyrkland þar með talið) en af þeim komust fjórar áfram.
Varla dettur nokkrum manni í hug að segja að hlutfallið þar hafi verið sérstaklega óeðlilegt.
Í úrslitakeppninni kepptu svo aðrar 24 þjóðir: 10 Austur-Evrópuþjóðir og 14 Vestur-Evrópuþjóðir og í tíu efstu sætunum lentu svo að lokum sex Austur-Evrópuþjóðir og fjórar Vestur-Evrópuþjóðir.
Nú er ég enginn líkindafræðingur en þegar þetta hlutfall er skoðað er varla hægt að halda því fram af mikilli hörku að það sé skítalykt af þessu öllu saman - sérstaklega ekki þegar haft er í huga að Vestur-Evrópuþjóðin Finnland fór með sigur af hólmi - og með nokkrum yfirburðum meira að segja.
En fyrir þá sem hafa gaman af samsæriskenningum þá er rétt að benda á það að eitt landsvæði í Evrópu sker sig úr og á þetta benti Stefán Pálsson á síðu sinni daginn fyrir aðalkeppnina:
"Fjögur af Norðurlöndunum fimm verða með í úrslitakeppninni annað kvöld. Það er 80%. Þetta er augljóslega galið hlutfall og ætti að kalla á umræður um það hvort ekki sé einhver meinsemd í keppnisfyrirkomulaginu sem hygli lögum frá Skandinavíu sérstaklega.
En nei - vegna þess að eitt Norðurlandanna fimm féll úr keppni, þannig að þau ná ekki 100% þátttökuhlutfalli í úrslitum, þá er þetta orðin Söngvakeppni Austur-Evrópu..."
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:33 | Facebook
Athugasemdir
Mér fannst Ágústa Eva /silvia nótt standa sig með prýði .Þeim sem fannst hún fölsk ættu bara prófa að fara í Evrovision og sjá að þetta er ekkert bara einn tveir og þrír búinn að vinna... Ágústa var með lang besta skemmtiatriðið og einginn getur neitað þvi.Við vorum i 13 sæti og munaði bara 14 stigum að við mindum komast i aðalkeppnina.Alger sind ,,,,,, bæ
karen Pálsdóttir (IP-tala skráð) 2.6.2006 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.