Það er ekkert til sem heitir tilviljun

Mannkyninu er umhugað um reglu. Án hennar gengi það af göflunum. Grikkir til forna voru mjög meðvitaðir um þessa tilhneigingu og leituðu því logandi ljósi að einhvers konar alheimsreglu eða formúlu sem virkaði jafnt í náttúrunni og í hinni andlegu tilvist manneskjunnar. Á einhvern hátt áttu vísindin að útskýra tilganginn á sama hátt og trúarbrögðin gera fyrir þorra mannkyns í dag.

Pýþagóras gekk manna lengst í þessu í fornöld og reyndi með afli að sníða veröldina að kenningum sínum um stærðfræðina. Sagan segir að hann hafi með áhrifum sínum orðið nemanda sínum að bana sem ekki gekkst undir kenningar hans.

Tumbler_SnappeÉg rakst á þessa mynd á netinu sem sýnir ef til vill innsta kjarna tilveru okkar. Þetta er atómsprengja einhverjum millisekúndum eftir að hún hefur verið sprengd og yfirborðshiti sprengingarinnar er rúmar 20.000 gráður á celsíus.

Sprotarnir sem ganga niður úr sprengingunni kallast Rope Trick Effect á ensku en það sem heillar mig er lögunin sem sprengikúlan myndar. Ekki mikla reglu eða samhverfu að finna í þessari mynd. Þó gæti verið að hlutfallið milli ummáls og þvermáls kúlunnar sé jafnt og pí og þá yrði Pýþagóras glaður - en ég veit það ekki.

En minn punktur er þessi: Minnir þessi kúla ekki nokkuð á höfuðkúpu?

Tilviljun? Regla? Eða guð að leira?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafþór H Helgason

Kannski Einstein hafi haft rétt fyrir sér eftir allt saman að guð kasti ekki teningum

Hafþór H Helgason, 28.3.2007 kl. 18:04

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér sýnist nú þetta vera nokkuð fullkomið form að brjótast  úr ham annars forms.  Það er einskonar sporöskjulaga hnöttur.  Þenslan er meiri  út til hliðanna og nálgast  raunlögun jarðar  í  sjálfu sér.  (fóstur var einnig eitthvað,  sem kom  í  hugann).

Mögnuð mynd og segir okkur kannski meira um stærra samhengi heimsins en stórir sjónaukar. 

Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 18:40

3 identicon

Þetta er ekki tilviljun, þetta er pareidolia !

Matthías Ásgeirsson

Matti (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 23:20

4 identicon

En þar með heldurðu því fram að þetta sé tilviljun, ekki satt?

Höskuldur Ólafsson (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 23:25

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Pareolia??  Það er jú tilviljun Mattías.  Svo sér enginn neitt geistlegt við þetta held ég.  Ekki einu sinni tröllsandlit eða fossbúa.

Annars vildiég bara bæta við að ég hef séð myndir af sprengingum í vatni, sem sýna svipaðan effekt.   

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2007 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband